zondag, november 11

Allt er leyfileg og allt er gagnlegt...

Eða svo segja þeir. En eftir að hafa lifað í heiminum meira en 20 ár veit stúlkan að ekki allt sem þeir segja er satt. En ég er í Amsterdam, syndaborginni miklu. Æji ég var voða spennt fyrir að sjá þessa glugga... En þetta er bara sorglegt. Ég kom sem sagt í gær með Ingeborg og restin af DTSinu kom í dag. Fyrirlestrarnig eru sameiginlegir með Amsterdam basinu þessa vikuna. Í gær fórum við í tveggja klukkustunda bæjarrölt (um miðjan dag nánar tiltekið frá hálf fjögur) með tvem strákum héðan. Þeir eru stórir sem langar fætur og við þurftum að hafa okkur allar við til að halda í við þá. Ingeborg vildi sjá the Klift sem er ministry frá YWAM í útjaðri rauða hverfisins. Í gær sáum við bara einn glugga en hann var upptekinn svo það var dregið fyrir. En í dag ætluðum við að fara í kirkju með fleirum héðan frá basinu. Þetta er Áströslk kirkja og það þarf að fara með strætó til að fara þangað. Við lögðum af stað milli 10 og hálf 11 en svo kom í ljós að stelpan var ekki alveg viss hvaða strætó átti að taka svo hitt fólkið sneri við. Það var nefnilega líka einhver samkoma hérna í húsinu hálf 11 og þau ákváðu því að fara þangað. Ég og Ingeborg röltum hins vegar um götur Amsterdam og ég sagði við hana að ég vildi drekka kaffi. Hófst þá leit að kaffihúsi. Sem var hægara sagt en gert. Við sáum margar koffe shop (staður þar sem fólk situr og reykir hass) en ekki jafn mörg kaffihús. Ekki það að það séu engir staðir hér í borg þar sem kaffi er selt en þessar koffe shop eru bara yfirgnæfandi margar. Við fórum á endanum inn í snoturt bakarí og borðuðum kökusneið og drukkum cappuchino. Síðan fórum við í bátsferð sem var fínt. Eftir það gengum við mikið. Fórum inn í nokkrar búðir. Sumar búðirnar minna mig á designer búðir í Reykjavík. Oh ég verð að viðurkenna það að ég sakna Reykjavík svolítið. En ég er kominn yfir heimþránna. Fyrir viku síðan fór hún. Þar áður voru 2 vikur soldið erfiðar.

En ég virkilega áttaði mig á því að ég var með hollenskri manneskju áðan. Við ætluðum að fara og skoða safn. Og við fórum þangað nema það að aðgangseyririnn var 10 evrur og við höfðum bara tæpa 2 klukkutíma (enginn stúdentaafsláttur á þessu safni). Svo Ingerborg segir Gudrun við skulum frekar koma hingað þegar við höfum allan eftirmiðdaginn. Svo við snerum bara við. Ég meina ég get ekki ímyndað mér þessar aðstæður gerast með Íslendingi. Því það er fullt annað sem við getum gert í Amsterdam þessa vikuna og við erum líka í skóla á daginn. Svo ég vildi bara sjá sem mest á sem skemmstum tíma. En mér var nú samt alveg sama þó við fórum ekki á þetta safn. Ég plana að fara á Van Gogh safnið og í Anna Franks Hús.

Ég fór í göngutúr með 3 stelpum núna í kvöld. Svo ég sá annan glugga úr fjarlægð. En mér finnst svo sorglegt að sjá menn fyrir framan þessa glugga.

2 opmerkingen:

Anoniem zei

Gaman að þú skildir blogg:) Gott að frétta af þér:) hehe..já þú hefur ekki bara ákveðið að fá þér eina hassjónu?;)

Unknown zei

gaman að lesa blogg frá þér, findið að heyra þín skoðun á holledingum:) þeir eru stórkostlegir; langleggjaðir og nískir!
hafðu það gott þarna, borðaðu stroopwafles og skilaðu kveðju til þeirra sem ég þekki, sérstaklega wim tolliner, hann er snillingur!

-sunna